Riscal 1860 Tempranillo

Þetta þriggja lítra box er rauðvín frá spænska vínhúsinu Marques de Riscal, sem er þekkt fyrir Rioja-vín sín. Riscal 1860 er fyrsta vínið sem fyrirtækið framleiðir utan Rioja en þetta vín er úr þrúgum af svæðinu Castilla y Leon.

Það verður að segjast eins og er að þetta er með betri þriggja lítra boxum á markaðnum, mikill ávöxtur, þroskuð, allt að því sultuð jarðarber og kirsuber, svolítið heitt og kryddað. Vínið hefur legið á tunnum og í lokin vottar fyrir eikinni. Gott með grillkjöti.

5.999 krónur eða sem samsvarar 1.499 krónum á 75 cl flösku. Góð kaup.

 

Deila.