La Grande Chapelle Rouge 2010

Rauðvínið Grande Chapelle kemur frá Bordeaux og er líkt og næst öll vín þaðan blanda úr þrúgunum Merlot og Cabernet Sauvignon.

Þetta er ungt Bordeaux-vín, með ágætlega sprækum ávexti, dökkum berjum, tannískt og sýruríkt. Reynið t.d. með grilluðum kjúkling eða pastaréttum.

1.799 krónur.

Deila.