Vicars Choice Pinot Gris 2010

Þrúguna Pinot Gris þekkja margir frekar undir ítalska heitinu Pinot Grigio og sumir jafnvel undir hinu þýska Grauer Spatburgunder. Þetta hvítvín er hins vegar nýsjálenskt en Vicar’s Choice er ein af línunum frá vínhúsinu St. Clair.

Sætur ávöxtur, sykurlegnar perur, melónur, hunang og blóm. Þægilegt og milt, mjúkt út í gegn.

2.349 krónur.

Deila.