Matt Thomson yfirvíngerðarmaður Saint-Clair á Nýja-Sjálandi var meðal gesta á vínsýningu sem haldin var á Hilton Nordica síðastliðinn vetur en þar kynnti hann m.a. þetta vín úr Vicar’s Choice línunni.
Sauvignon Blanc er sú þrúga sem Nýsjálendingar nota hvað mest og nýsjálenski stíllinn er einstakur. Þetta er ungt og þægilegt eintak af nýsjálenskum Sauvignon, sem sýnir mörg af hinum dæmigerðu einkennum þessara vína.
Angan vínsins einkennist af nokkuð skörpum sítrus, lime og greip jafnt sem ananas og ástaraldin en jafnframt er vínið grösugt og svolítið míneralískt. Mjög ferskt og þægilegt. Berið þetta vín fram með t.d. grillaðri bleikju eða laxi, t.d. samkvæmt þessari uppskrift hér.
2.349 krónur. Góð kaup.