Rabarbarasíróp

Þessi uppskrift gefur um 1-1,2 dl af sírópi

  • 1 stór rabarbarastilkur
  • 4 dl vatn
  • 2,5 dl sykur

Skerið rabarabarann niður í litla bita. Setjið í pott. Látið suðu koma upp og leyfið að malla í um 20 mínútur. Leyfið sírópinu að kólna og síið í gegnum þétt sigti.

(Ath að það sem eftir situr er dýrindis sulta).

 

Deila.