Þetta er bragðmikil kryddblanda sem er í anda landanna fyrir botni Miðjarðarhafs sem myndar kröftugan hjúp á fiskinn þegar að hann er grillaður.
- 1 beinhreinsað og roðflett laxaflak
- 1 væn lúka af söxuðum kóríander
- safi úr hálfri sítrónu
- 3 hvítlauksrif, pressuð
- 3 msk ólífuolía
- 1 tsk kóríander
- 1 tsk kanill
- 1/2 tsk engifer
- 1/2 tsk kardimomma
- salt og pipar
Maukið (allt nema laxinn) saman í matvinnsluvél. Veltið laxaflakinu upp úr blöndunni og geymið í kæli í 1-2 klukkustundir. Það er til dæmis hægt að setja löginn og flakið í plastpoka.
Best er að grilla laxinn í grillklemmu 3-5 mínútur á hvorri hlið, allt eftir þykkt flaksins.
Berið fram með kartöflum eða hrísgrjónum og góðu salati.
Það er líka gott að hafa t.d. tahini-jógúrtsósu með.
Með þessu þarf ávaxtaríkt og gott hvítvín, t.d. Sauvignon Blanc frá Nýja-Sjálandi á borð við Villa Maria.