Barone Ricasoli Chianti 2011

Það má segja að þetta sé litlibróðir Brolio, sem er Chianti Classico-vín Ricasoli-fjölskyldunnar í Toskana. Chianti-vínin eru alla jafna léttari og þeirra ber að neyta yngri. Þetta er hið snotrasta vín, kröftugur dökkur berjaávöxtur, sólber, kirsuber, örlítið kryddað, þarna er vottur af lakkrís. Þokkaleg fylling, skarpt. Gott matarvín. Passar vel við pastasósur með kjöti og tómötum, t.d. Bolognese.

2.449 krónur. Góð kaup.

Deila.