Japanskt majonnes hefur notið vaxandi vinsælda ekki síst með þeirri flóru nýmóðins sushi-rétta sem nú er að finna á mörgum veitingastöðum. Kewpie er eitt vinsælasta vörumerkið og bragðið er nokkuð frábrugðið hefðbundnu majonnesi ekki síst þar sem að notað er hrísgrjónaedik við framleiðslu þess.
Það er hægt að nota Kewpie á marga vegu. Í þessari uppskrift snöggsteikjum við þunnar kjúklingabringur og berum síðan fram með sinnepsósu úr japönsku majonnesi og frönsku sinnepi. En byrjum á kjúklingabringunum.
- 3 kjúklingabringur
- sítrónupipar
- hveiti
Bringurnar þurfa að vera mjög þunnar. Það er gott að setja þær í plastfilmu og berja aðeins til með kjöthamri. Alls ekki fletja þær alveg út í snitsel heldur einungis ná þeim niður í ca 1-1,5 sm á þykkt.
Kryddið þær vel með sítrónupipar og veltið upp úr hveiti.
Hitið olíu á pönnu. Þegar að hún er orðin mjög heit eru bringurnar steiktar í tvær og hálfa mínútu á hvorri hlið. Að því búnu er þeim pakkað inn í álpappír. Geymið í álpappírnum í fimm mínútur. Sneiðið niður.
Japanskt sinnepsmajonnes
- 2 dl Kewpie – japanskt majonnes (fæst t.d. í asískum mörkuðum og Fylgifiskum)
- 1 væn msk Dijon-sinnep
- 1 væn tsk Agavesíróp
Blandið saman í skál. Ath að hlutföllin eru ekki heilög. Bragðið til eftir ykkar smekk.
Berjið kjúklngabringurnar fram með japanska sinnepsmajonnesinu, tagliatelle-pasta og t.d. Bok Choy sem er steikt á pönnunni á meðan að kjúklingurinn bíður í álpappír.
Með þessu ferskt og gott Chardonnay, t.d. Montes Chardonnay