Barone Ricasoli Formulae 2010

Barone Ricasoli er með virtustu vínhúsum Toskana á Ítalíu og því engin furða að þegar það sendir frá sér kassavín þá sé það ekkert slor. Það færist í vöxt að betri vínhús bjóði upp á vín í slíkum pakkningum, ekki síst þau sem leggja mikla áherslu á Norðurlandamarkað.

Formulae er rauðvín úr þrúgunni Sangiovese og þetta er alvöru rautt Toskana-vín. Kröftugur kirsuberjaávöxtur, en líka smá „sveit“, fjós og krydd. Mjúkt með mildri sýru, tilvalið ítalskt matarvín.

6.480 krónur eða sem samsvarar 1.620 krónum á 75 cl flösku. Frábær kaup. Eitthvert besta rauða kassavínið.

Deila.