Það er bragð af íslenskum skógi í þessum drykk Ólafs Arnar Ólafssonar á Borginni en hann er um margt í svipuðum anda og Dry Martini.
- 6 cl Beefeater Gin
- dass Amontillado Sherry
- dass af Woodland Bitter
- dass af Björk
Hrærið með klaka. Það skiptir miklu máli að hræra drykkinn vel og lengi. Síið í glas. Skreytið með kokteilgúrku á tannstöngli og hana er líka gott að bíta í með drykknum.