Vín frá þekktasta framleiðanda Beaujolais í Frakklandi verða kynnt á smökkun sem haldin verður í Perlunni fimmtudaginn 10. október kl. 18-21. Smökkunin er haldin í samvinnu George Duboeuf, Bakkusar, Vínóteksins og Perlunnar.
Bernard Georges frá George Duboeuf verður á staðnum og mun kynna vínin og héraðið fyrir gestum en hægt er að mæta hvenær sem er á milli 18 og 21 og smakka vínin.
Beaujolais er hluti af héraðinu Búrgund en þó alveg sér á parti. Hér er það ekki rauðvínsþrúgan Pinot Noir sem er ræktuð heldur þrúgan Gamay. Beaujolais skiptist í tvö meginsvæði. Suðurhlutinn er sléttari en norðurhlutinn einkennist af hólum og hæðum. Tíu svæði í norðurhlutanum eru skilgeind sem Cru og hafa sína eigin „appelation“ það er það er nafn þorpsins sem stendur á miðanum en ekki héraðsins. Svæðin heita Fleurie, Julienas, Brouilly, Cote de Brouilly, Molin-á-Vent, Chiroubles, Morgon og Régnié.
Duboeuf er að öðrum ólöstuðum áhrifamesti og þekktasti framleiðandi svæðisins og hefur gjarnan verið nefndur „konungurinn af Beaujolais“.
Vínin sem hægt verður að smakka í Perlunni eru:
- Beaujolais Blanc
- Beaujolais Rouge
- Fleurie
- Saint-Amour
- Moulin-á-Vent
- Morgon
Við ætlum að bjóða lesendum Vínóteksins á smökkunina.
Ef þú hefur áhuga skaltu senda póst á maria@vinotek.is