Henri Bourgeois er með þekktari vínhúsum Sancerre en framleiðir einnig vín annars staðar í Loire-dalnum. Þetta svæði er eitt unaðslegasta hvitvínssvæði Frakka, þekkt fyrir fersk vín úr þrúgum á borð við Sauvignon Blanc og Chenin Blanc.
Þetta er hreinræktað Sauvignon, ferskt, svolítið skarpt með angan af hvítum blómum í bland við sítrusinn og hitabeltisávöxt. Það hefur ekki hinn míneralíska þurrleika Sancerre-vínanna en er á móti nær hinum ávaxtaríku Nýja-heimsvínum þessari sömu þrúgu. Langt og sýrumikið í munni, verulega vel gert vín.
2.699 krónur. Frábær kaup á því verði.