Beronia Graciano 2011

Þrúgan Tempranillo er vissulega sú þrúga sem langflest vín í Rioja eru gerð úr og mótar það bragðumhverfi sem að við tengjum yfirleitt við Rioja ásamt eikinni. En Tempranillo er ekki eina þrúgan í Rioja, það eru nokkrar til viðbótar sem ræktaðar eru í héraðinu og nota má í blönduna, raunar sjö þrúgur samtals.

Graciano er ein þeirra og er þrúga sem að er farin að njóta vaxandi vinsælda eftir því sem fleiri uppgötva þá fágun og þann sjarma sem hún getur búið yfir þegar vel lætur.

Vínhúsið Beronia í Rioja er eitt þeirra húsa sem hefur farið út í að framleiða vín þar sem einstaka þrúgur fá að láta ljós sitt skína. Þetta Graciano vín einkennist af ferskum, björtum og nokkuð krydduðum ávexti. Þarna er blómaangan, fjólur, ferskar kryddjurtir, í munni ferskt, nokkuð sýrumikið og flott. Matvænt. Reynið t.d. með spænskri Iberico-skinku eða góðum ostum!

2.799 krónur. Góð kaup.

Deila.