Concha y Toro er langstærsta vínfyrirtæki Chile og jafnframt það áhrifamesta. Það á fjölmörg önnur vínhús í Chile og Argentínu en þekktasta vínið er eflaust Casillero del Diablo. Reserva Privada er spariútgáfa þeirrar línu og í þessu víni er blandan svolítið óvenjuleg, annars vegar Bordeaux-þrúgan Cabernet Sauvignon og hins vegar Rhone-þrúgan Syrah.
Dökk ber í nefi, sólber, beisk kirsuber, all nokkuð míneralískt með mildri myntu og brenndu kaffi. Fínlegt í munni, tannískt og sýrumikið, piprað, flottur strúktúr og gott jafnvægi. Ekki dæmigert Chile-vín, nokkuð evrópskt í stílnum.
2.999 krónur. Mjög góð kaup.