Trivento Golden Reserve Chardonnay 2012

Golden Reserve-línan frá Trivento í Argentínu er alveg hreint mögnuð. Stór og mikil vín, langt fyrir ofan verðmiðann.

Þetta er Chardonnay sem er ekkert að reyna að leyna því að hann sé frá Nýja-heiminum. Bjartur, sætur og suðrænn ávöxtur tekur á móti, sætur sítrus, ananas, smjör og vanilla úr eikinni sem gefur einnig af sér smá rist/reyk. Leynir líka á sér með lúmskt Búrgundarlegum fínleika, þarna eru fíkjur og fennel. Þykkt og feitt í munni með sýru sem heldur fínum ferskleika þrátt fyrir þykktina. Klassavín.

Reynið með t.d. humar í rjómasósu.

2.999 krónur. Frábær kaup.

Deila.