Ostar og rauðvín í Kornhlöðunni

Ostar og rauðvín eru klassísk samsetning í hugum flestra og því ekki furða að margir hafi stokkið á það tækifæri að fara í osta- og vínsmökkun sem haldin var á Kornhlöðunni á Lækjarbrekku á dögunum. Það var vínþjónninn Martin Duran frá vínhúsinu Concha y Toro í Chile sem að fræddi þátttakendur um vín frá Chile og leiddi í gegnum smökkunina á vínunum sem pöruð höfðu verið saman við osta frá ljúfmetisversluninni Búrinu.

Deila.