Altos R Crianza 2011

Altos er lítið “boutique”-vínhús í RIoja Alavesa og víngerðarmenn þess hafa starfað áður hjá ekki óþekktari vínhúsum en Chateau Haut-Brion í Bordeaux og Pingus í Ribera del Duero.

Dökkt, svört kirsuber, mjög þroskuð, í nefi, krækiber, eikað, vanilla og mildur reykur, míneralískt, samþjappað, tannískt, þurrt með ferskri sýru.

2.268 krónur. Frábær kaup.

Deila.