Fortius Crianza 2010

Vínekrur Fortius í Navarra eru bara steinsnar eða svo frá vínekrunum syðst í Rioja Alavesa og þetta ágæta vínhús er einmitt í eigu eins þekktasta vínhússins í nágrannahéraðinu, Faustino og þrúgan er sú sama og alla jafna er uppistaða Rioja-vína  eða Tempranillo en einnig er um fimmtungur Cabernet Sauvignon.

Dökkur, rauður ávöxtur. Kirsuber, plómur, kaffitónar, skarpt, ungt, sýrumeira og ferskara en Rioja-vínin eru yfirleitt. Kjötvín.

80%
Frábær kaup

1.999 krónur. Frábær kaup. Fær fjórðu stjörnuna fyrir hlutfall verðs og gæða. Gott matarvín.

  • 8
Deila.