Baron de Ley Reserva 2011

IMG_1970Vínin frá Baron de Ley í Rioja eru í „módern“-stílum frá héraðinu og virðast einhvern veginn undantekningarlaust ná að brillera. 2011 Reserva-vínið kemur í kjölfarið á hinum stórkostlega árgangi 2010 og þó svo að það sé mjög ólíkt því frábæra víni er það engu að síður nánast á pari. Ávöxturinn er rauðari, bjartari, það hefur mjög ferskt yfirbragð í bland við töluverða vanillu og kókos úr eikinni, flott jafnvægi ávaxtar og eikar, mild en kröftug tannín, frábærlega vel gert.

90%

2.699 krónur. Frábær kaup, vín fyrir bragðmikið nautakjöt, ribeye og primerib en einnig lambið.

  • 9
Deila.