Planeta La Segreta Rosso 2014

IMG_1957Vínhús Planeta-fjölskyldunnar er eitt það þekktasta á Sikiley og vín þaðan eru nú fáanleg hér á landi eftir um áratugar hlé. La Segreta er eitt af ódýrari vínum hússins og rauðvínið er blanda úr þrúgunum Nero d’Avola, Merlot og Syrah. Þetta er mjög ungt rauðvín, dökkt yfirbragð, kröftugur, svolítið hvass rauður ávöxtur, rauð ber, kirsuber, rifsber, tannískt, nokkur sýra, kryddað. Gefið víninu tíma til að opna sig.

70%

2.499 krónur. Mjög góð kaup.

  • 7
Deila.