Badia a Passignano Chianti Classico 2010

img_2588 Klaustrið Badia a Passignano er ein af gersemunum í Chianti. Það setur setur sterkarn svip sinn á dalinn Sambuca Val di Peza og hefur gert það frá því á elleftu öld. Vínekrurnar sem umlykja klaustrið eru með þeim bestu í Chianti Classico. Þær hafa verið í umsjón Antinori-fjölskyldunnar frá 1987 og eitt af hennar fyrstu verkum var að gróðursetja afbrigði af Sangiovese-þrúgunni sem valin voru af ekrum einnar þekktustu landareignar hennar, Tenuta Tignanelo.

Dökkt, svarfjólublátt, enn mjög ungt. Þéttur, míneralískur og kryddaður ávöxtur, tóbakslauf og sedrus, leður og krækiberjasafi. Djúpt, tannískt og langt, mjög míneralískt og kryddað í lokin, piprað með smá vanillu. Magnað vín.

100%

5.599 krónur. Magnað vín. Með nauti, þurrum ostum, bragðmiklu risotti og jafnvel villibráð.

  • 10
Deila.