g dehesa gago 2014

img_2585Við höfum ekki séð mörg vín frá héraðinu Toro á Spáni í vínbúðunum hingað. Þetta er þó eitt af þeim svæðum sem hvað mest hefur verið að sækja í sig veðrið og er að verða ansi „heitt“. Við fjölluðum nýlega um þetta merka hérað eftir heimsókn þangað í fyrra og má lesa um það hér. Þrúgan sem ræktuð er í Toro er kölluð Tinta de Toro og er afbrigði af Tempranillo, sömu þrúgu og ræktuð er í Rioja og Ribera del Duero.

G Dehesa Gago er vín úr smiðju víngerðarmannsins Telmo Rodriguez en hann hefur átt ríkan þátt í því að koma Toro á kortið. Toro er þorp en orðið merkir auðvitað líka naut og Dehesa Gago er einmitt afbrigði nautgripa.

Þetta er massíft og mikið vín, dökkt og töluvert um sig. Þykkur og mikill plómu- og bláberjaávöxtur, sætur, áfengur, kryddaður, balsam og kóla, vínið er óeikað og þarf ekkert á því að halda, kröftug, mjúk tannín og góð sýra. Þetta er vín sem getur borgað sig að umhella.

90%

2.590 krónur. Frábær kaup og hálf auka stjarna fyrir hlutfall verðs og gæða. Með öllu rauðu kjöti.

  • 9
Deila.