Chunky Red Zinfandel 2014

img_3279Það mætti ætla í fyrstu að Chunky Red Zinfandel væri kalifornískur Zin ekki síst þegar við bætist á flöskumiðanum lýsingin „Double American Oak“. Þegar betur er að gáð kemur hins vegar í ljós að hér er á ferðinni Primitivo-vín frá Púglíu, syðst á Ítalíu úr smiðju Svíanna í Oenopholos. Í sjálfu sér ekkert slæm skipti enda er Primitivo að öllum líkindum hin upprunalega Zinfandel.

Dökkrautt, angan af sætum þroskuðum plómum, smá krydd, vanilla og mildir súkkulaðitónar úr eik, ávöxturinn sætur og mjúkur.

60%

2.299 krónur. Berið fram örlítið kælt, þolir alveg sæta meðlætið með t.d. jólamatnum .

  • 6
Deila.