Vínhúsið Chateau L’Hospitalet er að finna rétt hjá bænum Narbonne í suðurhluta Frakklands, Ekrur Hospitalet eru á la Clape, bergklöpp í um hundrað metra hæð yfir sjávarmáli, steinsnar frá Miðjarðarhafinu. Þetta er eitt af þremur rauðvínum sem að Gerard Bertrand ræktar á ekrum Hospitalet, heitur og þurrkaður ávöxtur i nefi, dökk ber, mikil jörð, smá sveit, mjög míneralískt, flottur strúktúr, mjúk tannín og góð lengd.
90%
4.998 krónur. Frábær kaup. Með önd og mildri villibráð.
-
9