Chateau la Sauvageonne Cuvée Pica Broca 2016

Chateau la Sauvageonne er eitt af vínhúsum Gerard Bertrands staðsett skammt frá Miðjarðarhafinu norðvestur af borginni Montpellier. Ekra vínhússin er um 57 hektarar og er hún eina 300 metar yfir sjávarmáli sem tryggir örlítið svalara loftslag og ferskari vín. Dimmrautt með dökkum ávexti, heitum og þroskuðum allt að því sultuðum, kirsuber, sólber, þykkt og kryddað, ferskar kryddjurtir og vottur af negul. Langt og þétt, vel strúktúrerað, mjúkt tannín og aflmikið vín,

 

90%

3.099 krónur. Frábær kaup - þetta er vín fyrir villibráðina en líka lambið.

  • 9
Deila.