Lan Reserva 2005

Bodegas LAN er vínhús í Rioja á Spáni sem var stofnað fyrir fjórum áratugum og hefur fest sig í sessi sem hágæða framleiðandi. Fyrr á þessu ári festi stærsta vínfyrirtæki Portúgal kaup á LAN og er það helsta fjárfesting Portúgala í spænskum víniðnaði til þessa.

Reserva-vínið frá LAN er blanda úr Tempranillo og Mazuelo-þrúgunum. Þarna eru dökk, þroskuð ber í nefinu,  kirsuber og plómur, krydd, smá fjós, súkkulaði og sedrusviður Mjúkt og feitt í munni með þægilegum tannínum. Virkilega flott Rioja-vín. Reynið með heilsteiktri nautasteik.

2.599 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.