Rabarbara Rúna

Við höfum verið að nota rabarbara mikið upp á síðkastið og ákváðum að setja saman einn slíkan drykk. Rabarbarasírópi úr íslenskum rabarbara (uppskriftin er hér)  er blandað saman við gin og sítrónusafa í ferskan „gintini“. Okkur fannst G Vine ginið passa best við. Það hefur töluverða sérstöðu, er framleitt í Cognac í Frakklandi af Camus-fjölskyldunni og er eimað úr þrúgusafa eitt gina. Það er milt og hefur örlitla sætu miðað við hefðbundin gin sem passar vel við rabarbarann.

Setjið í hristara með klaka og hristið vel. Hellið í Martini-glas.

 

Deila.