Kalkúnabringa með salvíu og parmesan

Kalkúnabringa fyllt með mozzarella og salvíu er skemmtilegt tilbrigði við hinar hefðbundnu kalkúnamáltíðir.

Kalkúnabringan

  • 1 kalkúnabringa
  • 50 g rifinn parmesanostur
  • 1 lúka fínt söxuð salvía
  • 1 msk volgt smjör
  • salt og pipar

Blandið öllu vel saman. Leysið skinnið frá bringunni með því að smeygja fingrum undir það og troðið blöndunni undir.

Soðið

  • 3 dl vatn
  • 2 sellerístönglar, grófsaxaðir
  • 2 gulrætur, gróft saxaðar
  • 1 laukur, grófsaxaður
  • 4 hvítlauksgeirar, saxaðir

Setjið í eldfast mót eða steikarfat. Setjið kalkúnabringuna sem búið er að troða með parmesanblöndunni ofan á og eldið í ofni við 200 gráður í 40-45 mínútur eða þar til að bringan er fullelduð. Hellið soðinu úr pönnunni/fatinu frá og notið í sósuna.

Salvíu- og sérrísósa

  • Kalkúnasoð
  • 1 skalottulaukur, mjög fínt saxaður
  • 1 msk smjör
  • 1 dl sérrí (helst þurrt á borð við Tio Pepe)
  • 2 msk fínt söxuð salvía
  • 2 msk sýrður rjómi 18% eða 1 dl rjómi

Hitið smjörið í potti og mýkið skalottulaukinn í nokkrar mínútur. Bætið sérrí og salvíu út í og sjóðið niður um helming. Bætið soðinu út í og látið malla þar til að sósan fer að þykkjast. Setjið sýrða rjóman út í og sjóðið aðeins áfram. Bragðið á sósunni og saltið og piprið ef þarf.

Berið fram með t.d. fetamús og kastarólu með sætum kartöflum.

Ferskt og þykkt hvítvín, t.d. hið franska Louis Jadot Bourgogne Blanc.

 

 

Deila.