Hörpuskelin er frábær og ekki versnar hún með því að vefja utan um hana smá ítalsakri skinku og bera fram á blómkálsmauki.
- 8 stórar hörpuskeljar
- 8 sneiðar parmaskinka
- 1 lítið eggaldin skorið í sneiðar
- 1 Mozzarellakúla
- lúka salvía, grófsöxuð
Aðferð:
Skerið eggaldinið í 8 skífur, hitið olíu á pönnu og steikið báðum megin þar til að skífurnar hafa tekið á sig góðan lit og eru orðnar mjúkar.Geymið.
Steikið hörpuskelina í 2-3 mínútur. Geymið.
Skerið ostinn í sneiðar og setjið eina sneið ofan á hverja hörpuskelin, síðan eggaldinskífu og þar á eftir salvíu. Vefjið sneið af parmaskinku utan um og steikið á vel heitri pönnu upp úr smá olíu í c.a. 1 ½ mín á hvorri hlið, saltið og piprið
Blómkálsmauk
- 1 lítill blómkálshaus
- 5 dl matreiðslurjómi
- 1 msk smjör
- salt og pipar
Aðferð:
Sjóðið blómkálið í rjómanum þar til það er orðið mjúkt. Hellið rjómanum frá og stappið blómkálshausinn ásamt smjörinu með svipuðum hætti og ef þið væruð að gera kartöflumús. Það má líka mauka í matvinnsluvél ef þið viljið fínlegra mauk. Bragðið til með salti og pipar.
Sojasmjör
- 50 g smjör
- 1/2 dl sojasósa
- safi úr 1/2 sítrónu
Bræðið smjörið. Blandið saman við sojasósu og sítrónusafa.
Setjið loks blómkálsmauk á diskana 1-2 hörpuskeljar á hvern disk og hellið loks smá sojasmjöri í kring.
Með þessu reyndist hið suður-franska Gerard Bertrand Chardonnay hitta beint í mark.