Þennan rétt fékk ég í yndislegu matarboði í Fossvoginum á dögunum þar sem hver rétturinn á fætur öðrum var töfraður fram og snæddur úti á palli í sumarblíðunni. Að sjálfsögðu reyndi ég að verða mér úti um uppskriftina. Upphaflega uppskriftin gerir ráð fyrir linguini-pasta en það er hins vegar erfitt að finna í verslunum hér á landi. Það má því nota gott spaghetti eða tagliatelle þess í stað.
Uppskriftin gerir ráð fyrir sex skömmtum. Þetta er hráefnið sem þarf:
- 1 kg. humar
- 500 g pasta
- 3-4 skarlottulaukar
- 4 hvítlauksrif
- 1 rauður chilipipar (fræhreinsaður)
- 6 tómatar
- 1-2 dl hvítvín
- Sítróna
- Steinselja
- Nomu kryddið “Italian Seasoning”
- 250 g smjör
- Ólívuolí
- Salt og pipar
Parmesanostur til að strá yfir og bera fram með
Byrjið á því að skera tómatana í báta, setjið í eldfast mót, hellið ólívuolíu yfir þannig að hún fljóti að hálfu yfir tómatana. Kryddið vel með salti, pipar og Italian Seasoning frá Nomu (einnig má nota sítrónupipar). Bakið í ofni við 200 gráða hita og veltið tómötunum reglulega í olíunni þannig að þeir maukist hæfilega.
Hreinsið humarinn úr skelinni og steikið hann síðan í smjörinu. Skiljið smjörið frá og setjið humarinn til hliðar.
Saxið lauk, hvítlauk og chili smátt og steikið í ólívuolíu ásamt klípu af smátt saxaðri steinselju.
Hellið humarsmjörinu á pönnuna með skarlottu/hvílauks/chili-olíunni. Bætið við tómatamaukinu og hvítvíninu og kreistið safann úr sítrónunni út í blönduna. Leyfið að malla á pönnunni á miðlungshita í nokkrar mínútúr.
Bætið humrinum við og látið malla í smástund á meðan hann er að hitna á ný.
Pastað er soðið skv leiðbeiningum, sett á fallegt fat eða í stóra skál. Humarblöndunni hellt yfir ásamt saxaðri steinselju.
Gott er að bera fram nýrifinn Parmesan-ost með pastanu og heitt baguette-brauð.
Með þessu smellur gott ítalskt hvítvín frábærlega t.d. hið sikileyska Villa Antinori eða Norður-ítalska Bertani Le Lave.