Myntu Köftas

Köftas eru kjötbollur sem eru vinsælar í Georgíu við Svartahaf´gerðar úr lambakjöti með fullt af myntu og lauk.

  • 800 g lambakjöt, hakkað
  • 1 stór bufflaukur eða 2 venjulegir laukar
  • 2 egg, pískuð saman
  • 1/2 sítróna
  • 3 sneiðar af ljósu brauði
  • lúka af myntublöðum, fínsöxuð
  • salt og pipar

Hakkið lambakjötið og annan laukinn. Blandið eggjunum, myntunni og safanum úr sítrónunni saman við. Vætið brauðsneiðarnar í vatni þannig að þær verði mjúkar en þó ekki gegnsósa af vatni og bætið út í.  Kryddið með salti og pipar. Blandið öllu vel saman, best er að nota hendurnar.

Mótið kjötbollur áþekkar golfkúlum að stærð. Grilliið ásamt lauknum, annað hvort á grilli eða í ofni á háum hita með grillinu á. Athugið að bollurnar geta verið nokkuð lausar í sér og það þarf að meðhöndla þær varlega.

Berið fram með rauðrófu og valhnetumauki.

Deila.