Isole e Olena Chardonnay Collezione de Marchi 2009

Paolo de Marchi hefur aldrei hikað við að fara ótroðnar slóðir með vínin sín frá Isole e Olena. Chardonnay-hvítvínið hans er yfirleitt flokkað með bestu hvítvínum Ítalíu og hann hefur nú tekið það róttæka skref að tappa víninu á flöskur með skrúfutappa, að minnsta kosti að hluta.

Chardonnay Collezione de Marchi 2009 er afburðavín og um margt minnir stíllinn meira á Búrgund en Toskana. Angan þess einkennist af sítrus, þarna er áberandi fersk sítróna en líka þurrkuð og sítrónubörkur í bland við suðræna ávexti, banana og ananas, vínið nokkuð míneralískt og töluvert eikað sem lýsir sér m.a. í mjúkum vanillukaramellutónum og hnetu.  Athugið að í flöskunum getur myndast botnfall, svokallaður vínkristall enda vínið ósíað. Þetta er fyllilega eðlilegt en það er best að fara varlega þegar síðustu dropunum er hellt úr flöskunni.

4.980 krónur

 

Deila.