La Vieille Ferme 2010

La Vieille Ferme er rauðvín frá héraðinu Cotes du Ventoux í Suður-Frakklandi, blanda úr þrúgunum Grenache, Syrah, Cinsault og Carignan.

Sætur, ferskur, rauður berjaávöxtur í nefi, jarðarber og trönuber, með mildum kryddum og greninálum. Ungt og sprækt vín. Reynið með lambakjöti elduðu með ferskum kryddjurtum, rósmarín og timjan.

1.950 krónur. Mjög góð kaup.

 

Deila.