Drostdy Hof Shiraz

Drostdy-Hof eru vín frá Suður-Afríku sem yfirleitt eru ágæt kaup og hafa notið mikilla vinsælda á Norðurlöndunum. Hér er það Shiraz-þrúgan sem er notuð.

Heitur, töluvert sætur og kryddaður berjaávöxtur og sveskjur, vottur af reyk. Hefur ágætis fyllingu, sætur mjúkur berjamassi í munni. Með t.d. svínakjöti og lambakjöti.

1.699 krónur.

 

Deila.