Peter Lehmann Chardonnay 2009

Þetta er ferskur Ástrali, með góðum ávexti en jafnframt þægilegri sýru sem gefur víninu ferskan léttleika.

Sítrus, ferskjur, fíkjur og eik í nefi. Mikill sítrus í munni, ferskt og míneralískt. Flott, svolítið evrópskir tónar í stílnum, ekki dæmigerður Ástrali.

2.098 krónur. Góð kaup.

 

Deila.