Vínhúsið Campo Viejo hefur framleitt vín í Rioja í rúma hálfa öld og hafa ávallt verið traust og klassísk í stílnum. Þetta Reserva-vín er blanda úr Tempranillo, Graciano og Mazuela.
Dökkt, reykur í nefi, eik og dökkur, þurr ávöxtur, plóma, smá vanilla, í munni þykkur ávöxtur, lakkrís, nokkuð kryddað. Kjötvín, t.d. svínakjöt.
2.299 krónur. Góð kaup.