Campo Viejo Gran Reserva 2007

Gran Reserva- vín frá Rioja liggja alla jafna um tvö ár á tunnu og álíka lengi á flösku og eru því búin að ná góðum og fínum þroska þegar að þau loks koma til neytenda. Eins og gefur að skilja setja eikartunnurnar svip sinn á vínið, það er mikill viður í nefi, sem kemur fram í vanillu og kaffi, þarna er líka þungur, dökkur ávöxtur, svört ber, þurrt í munni, mjúk tannín, nokkur sýra, elegant og fínt, kryddað í lokin, lakkrís.

2.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.