Pinot Blanc er ein af klassísku Alsace-þrúgunum en hefur ekki verið nærri eins algeng hér og Riesling, Pinot Gris og Gewurztraminer. Trimbach-fjölskyldan í þorpinu Ribeauville hefur starfrækt eitthvert elsta vínhús héraðsins um aldaraðir og þetta Pinot Blanc er eins og önnur vín hússins þurrt, stílhreint og fágað.
Vínið er ljóst og fölgult á lit, fersk mild angan þar sem sítrus er ríkjandi, sítróna og sítrönubörkur, hvít blóm og kamila, vottur af suðrænni ávöxtum á borð við melónu. Þurrt og þéttriðið, míneralískt.
80%
2.299 krónur. Tilvalinn fordrykkur eða með grilluðum fiski, jafnvel kjúkling.
-
8