Þeir sem muna vínframboðið hér á landi einhverja áratugi aftur í tímann ættu að kannast við vínhús Alberts Bichots því að lengi vel var St. Emilion-vín frá Bichot eitt af mestu seldu vínunum í búðunum ár eftir ár. Bichot er svokallaður negociant, þ.e. vínhús sem selur mikið af vínum sem aðrir hafa ræktað. Það er skýringin á því að þetta Búrgundarhús hafi verið að selja Bordeaux-vín frá St. Emilion. Bichot er raunar með stærri negociant-húsunum í Búrgund, á eina hundrað hektara þarf af ekrum og hefur á síðustu árum verið að einbeita sér að eigin framleiðslu í auknum mæli. Þetta gamla vínhús sem stofnað var í Beaune árið 1831 hefur hægt og sígandi verið að koma sér á kortið á ný sem alvöru „player“ í Búrgúndarvínunum.
Secret de Famille er vín sem kemur svolítið á óvart sem „standard“ Pinot frá Búrgund. Þrúgurnar koma nefnilega frá flottum svæðum í Cote de Nuits í kringum þorpin Chambolle-Musigny, Gevrey-Chamberting og Nuits-St.Georges. Dökkur, rauður ávöxtur, kirsuber, hindber, ávöxturinn hefur góða dýpt, er kryddaður og vínið er mjúkt og hefur góðan strúktúr. Þetta er vel gert og aðlaðandi Búrgundarvín fyrir peninginn.
2.990 krónur. Frábær kaup.
-
8