Þessi ítalski kjúklingaréttur er fljótlegur, einfaldur en gífurlega góður. Tómatarnir og vínið mynda frábæra sósu þegar þau eldast saman við kryddjurtirnar og laukinn.
- Heill kjúklingur
- 2 msk. ólífuolía
- 2 msk. smjör
- 1 laukur, saxaður
- 4 hvítlauksgeirar, saxaðir
- 2-3 greinar af fersku söxuðu rósmarín,
- Ein lúka fersk salvíublöð, söxuð
- 3-4 greinar af fersku garðablóðbergi (timían), saxað
- 1 dl hvítvín
- safi úr hálfri sítrónu
- 5-6 ferskir saxaðir tómatar. Einnig má nota heila tómata úr dós (2 dósir).
Ofninn er forhitaður í u.þ.b. 180 °C.
Kjúklingurinn er bútaður í tíu hluta. Kryddaður með salti og pipar. Hitið olíuna og smjörið saman á pönnu sem má fara í ofninn og brúnið kjúklingabitana í 5-8 mínútur. Bætið þá lauknum, hvítlauknum og kryddjurtunum út í og veltið um með sleif á pönnunni í um 2 mínútur.
Bætið loks víninu,sítrónusafa og tómötunum á pönnuna og blandið öllu vel saman. Látið malla á pönnunni í um 5 mínútur. Setjið pönnuna í ofninn og bakið í 35-40 mínútur.
Meðlæti: Tagliatelle, ferskt salat og nýbakað brauð.. og svo auðvitað nýrifinn Parmesan.
Gott rauðvín frá Toskana á Ítalíu smellpassar með t.d. Villa Antinori eða Isole e Olena Chianti Classico.