Þetta er vín úr smiðju vínhússins Rocca delle Macie í Toskana, sem hefur byggt upp traust og gott orðspor á þeim þremur áratugum sem liðin eru frá því Italo Zingarelli stofnaði fyrirtækið.
Confini Sangiovese di Toscana 2008 er einfalt vín að upplagi og ungt. Það endurspeglar hins vegar vel einkenni Sangiovese-þrúgunnar, er mjög týpiskt. Krydduð dökk angan, sultuð kirsuber og múrsteinn. Ágengt í munni, með góðri sýru og nokkuð tannískt.
Fínt með pasta eða öðrum einföldum ítölskum mat.
1.595 krónur. Góð kaup.