Sólþurrkaðir tómatar, ítölsk skinka og fullt af kryddjurtum eru það sem ráða ferðinni í þessari pastasósu sem er góð ein og sér með pasta en smellpasssar einnig með svínalundum.
Fyrir 4-6
800 g grísalundir
Það er gott að marinera kjötið fyrir steikiningu. Blandið saman í stórri skál 3 msk ólívuolíu, 2 pressuðum hvítlauksgeirum, 2 tsk þurrkaðri salvíu, 1 tsk þurrkuðu rósmarín, salti og pipar. Veltið lundunum upp úr kryddleginum og geymið i kæli í a.m.k. 3 klukkustundir, helst lengur.
Tagliatelle með norðurítalskri sósu
- 500 g Tagliatelle
1/2 dós sólþurrkaðir tómatar í olíu
1 bréf ítölsk hráskinka, Prosciutto
1 laukur
3 hvítlauksgeirar
1 búnt steinselja
1 lúka fersk salvíublöð
1 dl kjúklingasoð (vatn og 1 tsk kjúklingakraftur)
2,5 dl rjómi/matreiðslurjómi
salt og pipar.
ólívuolía
Saxið lauk, hvítlauk, sólþurrkaða tómata, skinkuna, steinselju og salvíu.
Hitið ofninn í 180 gráður.
Hitið olíu á pönnu.
Hitið vatn og sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum.
Steikið lundirnar þar til að þær hafa tekið á sig góðan lit, 2 mínútur á hvorri hlið. Setjið í fat og inn í ofn í um 10 mínútur.
Bætið smá olíu út á pönnuna ef þarf og steikið laukinn og hvítlaukinn í 3-4 mínútur. Bætið saxaðri skinkunni og sólþurrkuðu tómötunum út á. Steikið áfram í 2 mínútur og bætið þá kryddjurtunum út á. Blandið vel saman og veltið um á pönnunni í um mínútu. Hellið kjúklingasoðinu á pönnuna og sjóðið niður um rúman helming. Hellið rjómanum út á og lækkið hitann. Látið malla í 4-5 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað vel. Saltið ef þarf. Piprið vel.
Hrærið tagliatelle saman við sósuna. Skerið lundirnar í sneiðar og berið fram.
Með þessu hentar einfalt en kröftugt ítalskt rauðvín á borð við Caldora Sangiovese.