Fischer Classic Blauer Portugieser 2011
Austurríki er þekktast fyrir hvítvínin sín en austurrískir víngerðarmenn hafa á undanförnum áratugum verið að færa sig rækilega upp á skaptið í framleiðslu rauðvína.
Austurríki er þekktast fyrir hvítvínin sín en austurrískir víngerðarmenn hafa á undanförnum áratugum verið að færa sig rækilega upp á skaptið í framleiðslu rauðvína.
Santa Rita er eitt af elstu og þekktustu vínhúsum Chile og hefur aðsetur í hjarta Maipo, elsta vinræktarhéraðs landsins, en þaðan kemur einmitt þetta vín.
Cune er vínfyrirtæki í Rioja á Spáni og raunar næstelsta vínfyrirtæki héraðsins, stofnað á síðari hluta nítjándu aldar.
Vínið Valiano kemur frá Castelnuovo Berardenga syðst í Chianti. Valiano er stór tog mikið vínhús og eru ekrur þess um 70 hektarar. Það hefur verið í eigu fyrirtækisins Piccini frá 1995.
Pinot Noir þrúgan er mikill gikkur og hún sýnir sjaldan á sér bestu hliðarnar utan heimahagana í Búrgund í Mið-Frakklandi. Á Nýja-Sjálandi virðist henni hins vegar líða afskaplega vel, rétt eins og önnur frönsk þrúga, hin hvíta Sauvignon Blanc.
Barefoot-vínin kalifornísku eru ekki dýr en hafa engu að síður vakið mikla athygli á undanförnum árum einmitt fyrir það hvað þau gefa mikið fyrir peninginn.
Piccini Memoro er óneitanlega svolítið öðruvísi, þetta er blanda úr fjórum þrúgum, sem ræktaðar eru á gjörólíkum stöðum á Ítalíu
Finca Las Moras er athyglisverður framleiðandi frá Argentínu, vínin eru ekki ræktuð í Mendoza líkt og flest argentínsk vín sem hafa verið á markaðnum hér á landi til þessa heldur í héraðinu San Juan.
Þetta er suður-afrískt rauðvín, kassavín, frá vínhúsinu Two Oceans en nafnið vísar til þess að við Góðrarvonarhöfða mætast tvö úthöf, Atlantshafið og Indlandshaf.
Montecillo Crianza er nú aftur komið í gpmlu litina sína. Þetta Rioja rauðvín sem hefur verið með þeim vinsælustu hér á landi síðustu áratugina fór um tíma í skærrauðan búning – það er að segja á flöskumiðanum – en er nú aftur orðið íhaldssamt og dökkrautt.