Leitarorð: Rauðvín

Víndómar

Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana.

Víndómar

Turning Leaf-vínin frá Gallo koma oft verulega á óvart fyrir hreinan og tæran stíl og eitthvert besta dæmið um vel heppnað Kaliforníuvín fyrir fjöldamarkaðinn.

Víndómar

Fortius-vínin eru gerð í vínhúsi í eigu Faustino í héraðinu Tierra Estella. Vínin eru ræktuð í Navarra en rétt við mörkin að Rioja og óneitanlega er afskaplega mikill Rioja-fílingur í þessu víni.

Víndómar

Trivento er nútímalegt og athyglisvert vínhús í Argentínu sem byggt hefur verið upp á síðasta áratug. Vínin eru alþjóðleg, nútímaleg og athyglisverð.

Víndómar

Brolio-kastali hefur verið aðsetur Ricasoli-fjölskyldunnar í bænum Gaiole in Chianti frá því á miðöldum. Saga fjölskyldunnar er nátengd sögu og þróun víngerðar í Chianti líkt og lesa má um hér. Orðstír vínanna hnignaði um tíma á síðustu öld eftir að fjölskyldan seldi stóru alþjóðafyrirtæki reksturinn. Eftir að hún keypti hann til baka að ný hefur allt verið upp á við undir styrkri stjórn Francesco Ricasoli.

1 2 3 4