Rhone er fyrst og fremst rauðvínshérað en þar eru líka framleidd alveg prýðileg hvítvín í mun minna magni úr þrúgum á borð við Grenache Blanc, Clairette, Bourboulenc, Roussanne og Viognier, en þær er allar að finna í þessu hvítvíni.
Mjög ljóst og fölt á lit, í nefi sítrónbörkur, ferskjur og grænn frostpinni, þurrt, blómaangan, létt í munni, þægilega milt og fínlegt, hefur ágætis grip og ferskleika.
2.398 krónur. Góð kaup.