Paul Mas er vínhús í Suður-Frakklandi sem hefur vaxið ört síðustu árin ekki síst vegna mikilla vinsælda vínanna í Bandaríkjunum. Fyrstu vínin frá Mas komu í vínbúðirnar hér fyrir áramót og nú á dögunum bættust við nokkur einnar ekru vín. Þetta er eitt þeirra. Vín af ekrunni Savignac í Herault þar sem Carignac-þrúgan er ræktuð á fimmtíu ára gömlum vínvið.
Mjög heitt, þroskað, sólþroskaðar plómur, sólber, vanilla, viður, þurrt, vanillusykur, svolítið „rykugt“, reykur, rabarbari. Virkilega flott vín og frábær kaup á þessu verði.
2.580 krónur.