Gérard Bertrand Carignan Réserve Special 2011

Carignan er þrúga sem ræktuð hefur verið um aldabil í vínhéruðum Miðjarðarhafsins, aðallega í Frakklandi. Hún er yfirleitt notuð í blöndur og er þekkt fyrir að vera hörð, tannísk og sýrumikil Hún þarf mikinn hita til að ná fullum þroska. Vel gerð Carignan geta verið svakalega flott vín eins og þetta Réserve Special frá Languedoc í Suður-Frakklandi.

Mjög dökkt á lit, út í svart, angan af krækiberjum, plómum út í mildar sveskjur, þurrt, nokkuð kryddað, míneralískt, kraftmikið og titrandi, ávöxturinn djúpur, vínið tannískt og langt. Mikið og flott vín. Með grilluðu lambakjöti.

2.399 krónur. Frábær kaup á því verði.

Deila.