Vicar’s Choice Sauvignon Blanc frá vínhúsinu St. Clair er nýsjálenskur Sauvignon Blanc eins og maður býst við þeim og eins og maður vill hafa þá. Fersk, grösug angan, grænn aspas, kryddjurtir í bland við ferskan, svolítið skarpan ávöxt, lime, greip, ástaraldin, Í munni ferskt, sýra í bland við sætan ávöxtinn, stílhreint.
2.469 krónur. Mjög góð kaup.