Fleur du Cap Pinotage 2013

Pinotage-þrúgan sést ekki utan Suður-Afríka enda er þetta þrúga sem var „búin til“ þar fyrir rétt tæpri öld, sem blendingur af tveimur frönskum þrúgum, Búrgundarþrúgunni Pinot Noir og hinni suður-frönsku Cinsault. Segja má að hún hafi síðan verið eins konar flaggskipsþrúga suður-afrískrar víngerðar.

Fleur du Cap Pinotage er vín frá Höfðasvæðinu og hafa vínin fengið að þroskast í hinum fræga Bergkelder, stórum helli í fjallinu Papegaiiberg sem notaður er sem tunnu- og flöskugeymsla. Þægilegur dökkrauður og svartur ávöxtur, plómur og dökk ber, töluvert kryddað, mild eik. Mjúkt og þægilegt.

 

70%

2.199 krónur. Mjög góð kaup.

  • 7
Deila.