Þrúgan Viognier var lengi vel fyrst og fremst þekkt í þröngum hópi aðdáenda vínanna frá Condrieu agnarsmás ræktunarsvæðis eða appelation rétt sunnan af Cote-Rotie í Rhone. Á undanförnum árum hafa þó fleiri kveikt á perunni og því að þrúgan sé ræktuð víða í suðurhluta Frakklands.
Fölgult á lit, þrúgan er þekktust fyrir apríkósutóna en hér er það þó frekar ferskjur sem eru ríkjandi í nefinu, vottur af peru, svolítið feitt, míneralískt og ferskt, Hefur fína dýpt en er virkilega aðgengilegt.
80%
2.299 krónur. Frábært sumarvín. Með grilluðum lax og bleikju.
-
8